Skólavegur 25, 900 Vestmannaeyjar
32.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Tvíbýli
3 herb.
59 m2
32.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1925
Brunabótamat
32.650.000
Fasteignamat
23.250.000

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Skólaveg 25 sem er neðri hæð í tvíbýli á frábærum stað miðsvæðis í Vestmannaeyjum.  Húsið er byggt úr steini árið 1925 og er eignin 59,0 m2 skv fasteignaskrá ásamt 10,8 m2 útigeymslu sem er sameign, samtals 69,8 m2.  Baðherbergi var nýlega endurnýjað, rafmagnstafla nýleg. Heitavatnslagnir og ofnar yfirfarið árið 2015 ásamt rafmagni og sjónvarpstengum í stofu, herbergi og eldhúsi.  Fyrir nokkrum árum var þak endurnýjað, húsið einangrað með ímúr og klætt.
Stór góð lóð með góðum sólpalli í sameign.

BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið [email protected] eða í síma 8611105

Nánari lýsing: 
Forstofa: parket á gólfi, fatahengi, gengið upp stiga
Stofa: Parket á gólfi, opið í eldhús
Eldhús: Parket á gólfi, snyrtileg innrétting
Baðherbergi: Flísar á gólfi og votrýmum, walk in sturta, upphengt wc, innrétting
Herbergi: Parket á gólfi, skápur
Herbergi: Steypt gólf, þarf að endurnýja að einhverju leiti. Nýr gluggi getur fylgt.
Útigeymsla/þvottarhús: Við inngang íbúðar, sameign með efri hæð, þar er vaskur og þvottaaðstaða




Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.