Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu. Virkilega snyrtilega og bjarta, nýlega fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi, Heiðarstekk 8. Íbúðin er 92,1 fm. Húsið er byggt 2022 úr forsteyptum einingum. Malbikað bílaplan og hellulögn. Rafhleðsla fyrir bíla á bílaplani.ÍBÚÐ: Komið inn í forstofu með innfelldum fataskáp. Í opnu rými þar sem er eldhús, stofa og borðstofa er útgengi á fínar svalir með fallegu útsýni. Baðherbergi er flísalagt, sturta með glervegg, handklæðaofn, upphengt wc og innrétting. Í sérherbergi er þvottahús með vinnuborði og skolvaski. Þrjú góð svefnherbergi, eitt af þeim hjónaherbergi með stórum fataskáp og einnig eru fataskápar í barnaherbergjum. Spánýtt harðparket er á gólfum. Innfelld uppþvottavél fylgir. Fallegar innréttingar, skápar og vönduð heimilistæki.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni ásamt hjóla- og vagnageymslu í sameign á hæðinni.
Nýleg, björt og falleg íbúð.
Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected]
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir" Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan HÚS því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun