Birkigrund 22, 800 Selfoss
98.000.000 Kr.
Parhús
5 herb.
197 m2
98.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2000
Brunabótamat
108.310.000
Fasteignamat
88.300.000

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu Birkigrund 22, Selfossi. Vel staðsett, steinsteypt parhús á tveimur hæðum, stimpilsteypt stétt, sólstofa, stór timburverönd og heitur pottur. 

Húsið er alls 197,9 fm. Íbúðin er 150,0 fm, bílskúrinn er 30,4 fm og sólstofan 17,5 fm. Fjögur svefnherbergi.  Stór timburverönd með skjólveggjum.  Heitur pottur með loki og stýringu.  Stimpilsteypt stétt og innkeyrsla framan við hús. 

Lýsing eignar. 
Rúmgóð flísalögð forstofa þar er skápur. 
Flísalagt forstofusalerni. 
Þvottahús er innaf forstofu og er innangengt úr þvottahúsi í bílskúr. 
Stór flísalögð stofa.  
Úr stofu er útgengt í flísalagða rúmgóða sólstofu.  Sólstofan er upphituð, byggð úr álprófílum.  Á sólstofunni eru tvær stórar rennihurðar auk þess er gönguhurð út á pottasvæði. 
Flísalagt eldhús með innréttingu úr kirsuberjavið.  Nýtt spanhelluborð.  Nýlegur háfur og nýleg innfelld uppþvottavél.  
Úr holi er gengið upp á efri hæð. 
Á efri hæð er:
Parketlagt sjónvarpshol með útgengi á steyptar svalir.
Þrjú parketlögð svefnherbergi þar af eitt með föstum skápum.  
Baðherbergi er flísalagt þar er stór innrétting, handklæðaofn, nýr sturtuklefi.  Gólfhiti er á baðherbergi. 
Bílskúr:
Flekahurð með opnara.  Geymsluloft er yfir bílskúr. 
Í bílskúr er fjórða svefnherbergið, með hurð út á baklóð.   Herbergi í bílskúr skráð sem geymsla.

Húsið er steinsteypt og steinað að utan. Bárujárn er á þaki. Húsið er byggt árið 2000 og sólstofan árið 2014.  Gólfhitalagnir eru á neðri hæð og baðherbergi á efri hæð.  Álofnar m.a. á efri hæð í sólstofu og borðkrók.  Forhitari á neysluvatni.
Lóðin er gróin og snyrtileg.  Geymslukofi á baklóð. 

Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996  [email protected]  

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                                                                          
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.