Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu parhúsið Fosstún 23, Selfossi. Góð staðsetning, innsta hús í botnlanga með útsýni. Húsið er alls 142,2 fm. Íbúðin er 102,3 fm og sambyggður 40,1 fm. bílskúr. Þrjú svefnherbergi. Malbikuð innkeyrsla. Lýsing eignar. Forstofa opið inn í stórt alrými sem samanstendur af eldhúsi, stofu og holi.
Eldhús með nýrri eikarinnréttingu með eyju. Innrétting frá IKEA og bakaraofn frá Miele.
Stofan er björt og rúmgóð. Útgengt er á baklóð úr stofu. Upptekin panilklædd loft eru í eldhúsi og stofu.
Baðherbergi er flíslagt þar er sturtuklefi, nýleg innrétting. Hiti er í gólfi á baði.
Þrjú svefnherbergi þar af tvö með skápum.
Nýlegt vinilparket er á gólfum í stofu, eldhúsi, holi og svefnherbergjum.
Þvottahús er flísalagt þar eru skápar. Innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi.
Bílskúr:
Gólf er vélslípað. Flekahurð með opnara. Geymsluloft er yfir bílskúr.
Í bílskúr er salerni og afstúkuð geymsla. Útgengt er á baklóð úr geymslu.
Húsið er byggt úr timbri árið 2000. Að utan er húsið klætt með steni. Á þaki er litað bárujárn.
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 [email protected]
,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir" Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.