Langamýri 38, 800 Selfoss
74.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
137 m2
74.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2004
Brunabótamat
62.650.000
Fasteignamat
71.650.000

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu. Gott 137,1 fm, fjögurra herbergja endaraðhús við Löngumýri 38 á Selfossi.   Húsið er timburhús klætt með stení og á þaki er járn-bára.  Á lóð er sólpallur með skjólgirðingu og bílaplan er malbikað.  Frábær staðsetning í rólegu hverfi innst í botnlanga. 

***** Húsið er tómt og tilbúið til afhendingar við kaupsamning ***** 

Nánari lýsing. Flísalögð forstofa með lausum fataskáp. Þrjú svefnherbergi.  Stofa, borðstofa og eldhús í stóru, opnu og björtu rými þar sem hurð er út á sólpall.  Upprunaleg eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi þar sem flísalagt er á milli borðplötu og efri skápa.  Flísalagt baðherbergi, innrétting, sturta og wc.  Lítið þvottahús með innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara í vinnuhæð.  Gólfefni eru korkflísar.  Úr forstofu er innangengt í rúmgóðan bílskúr. 

Góð eign á góðum stað í góðum bæ.  Staðsett í barnvænu umhverfi þar sem stutt er í verslun, leik- og grunnskóla. 

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali s. 891-8891 eða [email protected]
Hringið og bókið skoðun.


 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, fyrstu kaupendur 0,4%, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.Fletta í fasteignalista
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.