Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu glæsilegt sumarhús að Hallkelshólum 92, Grímsnes- og Grafningshreppi. Staðsett innst í hverfinu húsið er 49,5 fm auk svefnlofts, ásamt 15 fm geymslu, 10 fm gestahúsi og grillskýli. Mjög stór timburverönd með skjólveggjum umhverfis húsin. Húsið er bjálkahús byggt árið 2017, húsið er skráð 37,4 fm en búið er að byggja yfir 12,1 fm verönd og er því húsið 49,5 fm. Búið að einangra húsið að utan og klæða með bjálkaklæðningu nema hluta einnar hliðar. Húsið stendur á steyptum þverbitum. Að innan er húsið með plastparketi. Að mestu upptekin panilklædd loft. Eitt svefnherbergi með skáp. Baðherbergi er með sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Yfir svefnherbergi og baðherbergi er svefnloft. Timburstigi er upp á milliloft. Eldhúsinnrétting er hvít háglans. Uppþvottavél og ísskápur fylgja. Húsið er upphitað með varmadælu. Hitakútur fyrir neysluvatn. Einfalt gler er í yfirbyggðri verönd, annars er tvöfalt gler.
Geymslan er 15 fm einangruð og klædd að innan með krossvið.
Gestahús er 10 fm bjálkahús, einangrað og plastað en óinnréttað að öðru leiti. Parket er til á gestahúsið.
Lítill leikkofi er einnig á lóðinni og grillskýli.
Á veröndinni er rafmagnshitapottur (bilað stjórntæki hitar ekki uppfyrir 18c°). Stórt bílaplan. Göngustígur að húsi með mulningi. 3 fasa rafmagn. Plastrotþró. Lóðin er 8.000 fm leigulóð úr Hallkelshólum. Virkt sumarhúsafélag er á svæðinu. Rafmagnshlið
Möguleiki er að kaupa innbú og útihúsgögn með.
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 [email protected] ,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.