Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Fögruvelli - Miðstræti 18 í Vestmannaeyjum sem er einstaklega fallegt og mikið endurnýjað einbýlishús á 2 hæðum á frábærum stað í miðbænum. Húsið er byggt úr steini árið 1942 og er 121.6 m2, þar af er bílskúr sem var byggður árið 1983 og er 32.5 m2. Gólfflötur í risi er um 30 m2 og er ekki inn í fermetratölu eignarinnar. Húsið og bílskúr er einangrað að utan og klætt með alusink bárujárni. Búið er að setja myndarlega girðingu kringum húsið sem lokar af garðinn, mjög auðvelt að koma fyrir heitum potti. Möguleiki á að útbúa séríbúð í bílskúr með sérinngangi.
Einstök eign á frábærum stað með fallegu útsýni. Eignin getur verið laus fljótlegaEndurbætur: Húsið hefur verið töluvert endurnýjað undanfarin ár, má þar nefna nýlegar skólplagnir frá húsi útí götu, endurnýjaðar raflagnir - ný rafmagnstafla, flestir ofnar endurnýjaðir, forhitari er á neysluvatni. Á miðhæðinni hafa gólf verið endurgerð, einnig hafa loft verið tekin niður og klædd.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið [email protected] eða í síma 8611105Nánari lýsing: Fyrsta hæð:Forstofa: rúmgóð með mustang flísum á gólfi
Eldhús: eikarparketi á gólfum, Ikea innrétting með útdraganlegum skúffum, límtrésborðplata, endurnýjuð og niðurtekin loft
Stofa: eikarparketi, endurnýjuð og niðurtekin loft
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, hiti í gólfum, wc, góð sturta, tengi fyrir þvottavél
Stigi: er uppá efri hæð, er með nýlegu kókosteppi, geymsla undir stiga
Önnur hæð:Herbergi 1: Parket á gólfi, skápur
Herbergi 2: Parket á gólfi, skápur
Herbergi 3: Parket á gólfi
Ris: er mjög rúmgott, um 30 m2, sérsmíðaður stigi er uppí risið, nýtt gólf og loft, opnanlegur gluggi.
Bílskúr: er rúmgóður, innangengur úr eldhúsi með eldvarnarhurð. Wc og sturta. Mjög auðvelt væri að gera studio íbúð í bílskúr. 2 útgöngudyr, önnur að framanverðu við hlið bílskúrshurðar- hin liggur út í garð bakvið húsið
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.