Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Austurvegur 41b. Selfossi. Nýleg þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi, íbúð 105. Íbúðin er 97,5 fm með sér geymslu í kjallara sem er 7,6 fm. Yfirbyggð verönd og sér sólpallur þar framan við sem snýr inn í garðinn.Húsið er fyrir 50 ára og eldri og var byggt 2019. Sameign húss og lóðar er öll hin snyrtilegasta og til fyrirmyndar.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Bókið skoðun hjá fasteignasala s. 8648090
Nánari lýsing íbúðar: Forstofa með með fataskáp.
Eldhús og stofa í opnu rými. Parket á gólfi. Góð eldhúsinnrétting. Uppþvottavél fylgir. Úr stofu er gengið út á yfirbyggða
verönd sem hægt er að opna út á
sólpall. Tvö
herbergi með fataskápum. Parket á gólfi.
Baðherbergi flísalagt, ágæt innrétting, opin sturta og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Íbúðin er nýmáluð og er vel umgengin og lítur nánast út eins og ný.Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða
[email protected]Bókið skoðun hjá fasteignasala.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.