Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896 9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Álalækur 17, björt og snyrtileg 4herb. 91,2fm íbúð á þriðju hæð með stórum suður svölum, auk 5fm geymslu á jarðhæð, samtals 96,2fm, í nýlegu fjölbýli á eftirsóttum stað á Selfossi.Í
forstofu er skápur fyrir yfirhafnir. Mjög rúmgott
hjónaherbergi þar á hægri hönd og
annað herbergi til vinstri.
Gangur inn í opið rými stofu og eldhúss og gengt út á
stórar svalir úr stofu, fallegt útsýni til suðurs og vesturs. Til vinstri handar á ganginum er líka
þvottahús, baðherbergi og þriðja svefnherbergið við hlið stofunnar, góðir fataskápar í öllum herbergjum.
Í eldhúsi er hvít eldhúsinnrétting frá GKS og innbyggð uppþvottavél og ísskápur sem fylgja við sölu.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, sturta lokuð með glerhurðum, upphengt klósett, vaskur á stórum skúffuskáp og handklæðaofn.
Þvottahúsið einnig flísalagt og með skolvaski.
Harðparket á öllum gólfum nema baðherbergi og þvottahúsi, timburdekk á svölum og handrið þar úr gleri. Íbúðinni fylgir
5fm sér geymsla á jarðhæð auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu í sameign hússins.
Húsið er með lyftu, klætt að utan með álklæðningu og timburklæðningu inni á svölum, og inngangar af lokuðum svölum.
Góð fjölskylduíbúð. Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565 [email protected]
Hafðu samband og pantaðu skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús Fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.