Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896 9565 og Hús fasteignasala kynna:
68,5fm iðnaðarbil merkt 106, með afstúkuðu klósetti, í nýlegu iðnaðarhúsnæði á Selfossi sem telur 14 bil samtals. Upphaflega var opið á milli bila 106 og 107 og þannig hafa þau verið í útleigu um hríð.
Nú verður settur upp brunaveggur á milli bilanna og þau seld hvort um sig.
Innkeyrsludyr eru 3m breiðar og 3,5m á hæð.
Stærð gólfflatar u.þ.b. 5m x 12,4m, lofthæð inni u.þ.b. 3,9m - 4,8m.
Gólfplata er steinsteypt og vélslípuð, burðarvirki límtré, klæðning þaks og veggja úti og inni samlokueiningar með PIR einangun. Innkeyrslu- og göngudyr við hlið þeirra úr PVC efni eins og gluggarnir á bakhlið sem eru með tvöföldu einangrunargleri og björgunaropi.
Bilið eru hitað upp með hitablásara og LED lýsing er í lofti og yfir útidyrum, og gert er ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla í töflu og þriggja fasa rafmagn.
Lóð malbikuð framan við húsin og eitt bílastæði framan við hvert bil á um 30fm sérnotafleti. Mulningur í lóð baka til og kvöð um aðgengi að inntaksrýmum.
Salerni stúkað af með PIR einingum, upphengt klósett og vaskur á skáp. Skolvaskur úr stáli þar utan við.
Virðisaukaskattskvöð hvílir á bilinu uppá u.þ.b. kr. 2.340.000.- sem kaupandi yfirtekur.
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar í síma 896 9565 eða í tölvupósti [email protected]
Hafðu samband. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.