Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s. 896 9565 og Hús fasteignasala kynna:Nýtt 42,5fm iðnaðarbil undir millilofti í nýju atvinnuhúsnæði við Dynskála 51 á Hellu. Bilið er með innkeyrsluhurð, 2,5m á hæð og 3,0m á breidd og gönguhurð. Lofthæð er um 2,9m og gólfflöturinn er u.þ.b.6x7m samkvæmt teikningu.
Skolvaskur, sér rafmagnstafla og tengistútar fyrir klósett.
Rýmið er hluti af stærri einingu en verður hólfað af með brunavegg og stofnað sem sér eignarhluti í húsinu. Helstu punktar úr skilalýsingu inðnaðarhúsnæðisins við Dynskála 51:Lóðin verður malbikuð. Gert er ráð fyrir bílastæðum fyrir framan og aftan hverja einingu. Aðkoma er frá Dynskálum.
Uppbygging húss: Húsið er byggt ofan á steypta sökkla. Burðarvirki er límtré. Allir útveggir og þak hússins eru klædd með steinullareiningum, svo og milliveggir. Gólfplata
skilast vélslípuð. Neysluvatnslagnir eru lagðar undir gólfplötu.
Innkeyrsluhurðir í góðum gæðum og með rafmótoropnun. Gönguhurðir og gluggar eru úr viðhaldsfríu PVC plasti með tvöföldu einangrunargleri. Gólfniðurföll er fyrir innan allar innkeyrsluhurðir og frárennslisstútar fyrir salerni og skolvask innar.
Rafmagn: Aðaltafla með mælum fyrir hverja starfseiningu frágengin í inntaks-/tæknirými við norðurgafl hússins. Greinatafla frágengin í hverri starfseiningu með einum þriggja fasa tengli við hliðina og gert er ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla í töflu. Full lýsing (LED) í hverri starfseiningu og hitablásari til upphitunar.
Tengigjöld hita, rafmagns og kalds vatns verða greidd og allar veitur tengdar við húsið. Gatnagerðargjöld
eru greidd.
Virðisaukaskatts kvöð hvílir á húsinu sem kaupandi yfirtekur, um 3,5 - 4,0 m.kr. á hverja einingu.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0,3% af væntanlegu brunabótamati.
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565 [email protected] Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
5. Skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.