Móstekkur 66, 800 Selfoss
66.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
90 m2
66.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
36.800.000

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í sölu spánýtt, snyrtilegt og flott raðhús við Móstekk 66.  Húsið er fullbúið og tilbúið til afhendingar. Staðsetning er í suð-vesturhluta bæjarins í göngufæri frá Stekkjarskóla. Húsið er 90,5 fm, byggt úr timbri, klætt að utan með ál utanhússklæðningu.  

Nánari lýsing:
Forstofa með fínum fataskáp. Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfi, öll með fataskápum. Rúmgott baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, handklæðaofn, innrétting, spegill, skápur og "walk inn" sturta með glervegg og innbyggðum blöndunartækjum. Flísalagt þvottahús með innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara í vinnuhæð. Vönduð elhúsinnrétting, ljúflokur á öllum skúffum og skápum. Heimilistæki, ísskápur/frystir og uppþvottavél innbyggð í innréttingu. Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu rými þar sem útgengt er út á lóð.    Geymsluloft með stigaloki.

Svæðaskiptur gólfhiti á lokuðu kerfi með stýringum, harðparket frá Birgisson og flísar á votrýmum. Gluggar eru vandaðir ál/tré.  Forritanleg ljósastýring/rofar.  Varmaskiptir á neysluvatni. Drenmöl í bílaplani, steypt ruslatunnuskýli og lóð annars grófjöfnuð.

Nýtt raðhús til afhendingar við kaupsamning.

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected] 

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"    


                                                                                                                  
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.