Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu einbýlishúsið Hólsbraut 14, Borg, Grímsnes- og Grafningshreppi. Glæsilegt 214,8 fm einbýlishús sem stendur hátt og er því mikið útsýni frá húsinu. Stór afgirt skjólsæl timburverönd með skjólveggjum, sem er að hluta undir þakskeggi og svölum. Á veröndinni er heitur pottur. Innkeyrsla er hellulögð. Laus fljótlega. Alls er eignin 214,8 fm þar af er sambyggður bílskúr 46,8 fm. Húsið er að hluta til á tveimur hæðum. Það er byggt úr timbri og steinsteypu árið 2012, en veggur sem aðskilur íbúð og bílskúr er steinsteyptur auk hluta íbúðarinnar og þakvirki er úr timbri. Þak er einhalla klætt með bárujárni. Að utan er húsið klætt með Duropal klæðningu. Gluggar eru hvítmálaðir úr timbri.
Í húsinu eru þrjú svefnherbergi. Auk þess er einfalt mál að nýta efri hæðina sem fjórða svefnherbergið. Tvö baðherbergi. Á gólfum neðri hæðar er ljósar 45x45 flísar og er viðarparket á efri hæð. Eikar innihurðar 90 cm breiðar. Upptekin loft með ljósum viðarþiljum með skuggafúgum. Gólfhitalagnir á neðri hæð með stýringum. Forhitari á miðstöðvarlögnum. Innréttingar frá Fagus.
Innra skipulag.Forstofa er rúmgóð opin. Úr forstofu er gengið inn í hol, þaðan sem gengið er inn í önnur rými hússins m.a. upp á efri hæð um fallegan parketlagðan stiga. Hljóðplötur eru á veggjum í holi og stofu til að tryggja góða hljóðvist.
Eldhúsið er með hvítri eldhúsinnréttingu. Í innréttingunni er m.a. tækjaskápur, gott vinnupláss og tveir búrskápar. Eyja skilur að eldhús og stofu, en í þeim hluta eyjunnar sem snýr að stofu eru glerskápar. Úr eldhúsi er útgengt á verönd,einnig er útgengt á verönd úr stofu. Stofam og eldhúsrýmið er mjög bjart og rúmgott en þar eru gólfsíðir gluggar, auk svalahurða, upptekin loft með mikilli lofthæð, þar sem er innfeld LED lýsing. Tenglar ofan við glugga fyrir jólaseríur. Hluti tengla í stofu er á slökkvara.
Hjónaherbergi er með skápavegg útgengt á verönd sem er undir þakskeggi.
Svefnherbergi, þar er svefnlofti með föstum timburstiga.
Baðherbergi með baðkari, innréttingu, handklæðaofni, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús með útgengi út á verönd. Innrétting fyrir þvottavél í vinnuhæð
Baðherbergi með sturtu upphengdu salerni og handklæðaofni
Svefnherbergi er innaf baðherbergi. (skráð sem geymsla á teikningum)
Efri hæð er eitt opið parketlagt rými. Þaðan er útgengi á steyptar 11 fm svalir með handriði. Mjög flott útsýni af svölum.
Innangengt er í flísalagðann bílskúr. Bílskúrinn er 46,8 fm. Þar eru stórir skápar. Manngengt 16 fm geymsluloft er yfir hluta bílskúrs. Gott aðgengi er að geymsluloftinu um fastann timburstiga. Stór flekahurð.
Lóðin er frágengin, hellulögð innkeyrsla sem er um 180 fm. Steyptur kantur með lýsingu á milli lóða. Við húsið er um 170 fm timburverönd með skjólveggjum og heitum potti (án stýringa). Verönd að hluta undir svölum og þakskeggi. Lóðin er að öðru leiti ónsnertur mosavaxinn mói með trjám inn á milli. Lóðin er 1.120 fm leigulóð frá Grímsnes- og Grafningshreppi.
Húsið er staðsett í þéttbýliskjarnanum Borg í Grímsnesi þar sem er m.a. leik- og grunnskóli sem og íþróttamiðstöð og sundlaug. Örstutt er í alla helstu þjónustu og verslun á Selfossi.
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 [email protected] ,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.