Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896-9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Björt og snyrtileg 2herb 70,3fm íbúð í parhúsi á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi. Sundlaug, grunn- og leikskóli í göngufæri. Íbúðin samanstendur af forstofu, svefnherbergi, baðherbergi, eldhúsi og stofu í sameiginlegu opnu rými og geymslu innan íbúðar sem einnig er hægt að nota sem svefnherbergi.
Forstofan er flísalögð og skápur og hengi þar fyrir yfirhafnir.
Þá rúmgóð
stofa og gengt út í garð bak við húsið úr henni.
Eldhúsið með upphaflegri eldhúsinnréttingu og tækjum að mestu.
Svefnherbergið rúmgott og með nýlegum fataskápum.
Baðherbergið flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu og hengi, handlaug á skúffu-skáp og spegilskápur fyrir ofan, klósett og tenging og ágætt pláss fyrir þvottavél.
Geymsla við hlið forstofu vel nýtanleg sem svefnherbergi.
Ljósar flísar á gólfum stofu, eldhúss, svefnherbergis og geymslu.
Að utan er húsið klætt með standandi viðarklæðningu, gluggar og hurðir úr tré og bárujárn á þaki. Mulningur í innkeyrslu og garðurinn verður þökulagður fyrir afhendingu.
Á Borg er sundlaug, grunn- og leikskóli og aðeins 22km á Selfoss hvar finna má alla helstu þjónustu.
Flott fyrstu kaup.Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar um eignina.
S. 896 9565 [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.