Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s. 896 9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:Nýtt fullbúið og vandað þriggja herbergja, 84,4fm endaraðhús í Árnesi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Forstofa er flísalögð og gott
forstofu herbergi á hægri hönd með fataskáp. Dyr úr forstofu inn í íbúðina.
Þar til vinstri rúmgótt
hjónaherbergi með stórum fataskápum og
geymsla við hlið þess.
Baðherbergið á hægri hönd með flísalögðu gólfi og veggjum sturtu. Upphengt klósett, handlaug á skáp og speglaskápur yfir henni, og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Opið og bjart
sameiginlegt rými stofu og eldhúss með hurð út í garð og þar hugsað fyrir lögnum fyrir heitan pott.
Eldhúsinnréttingin frá IKEA, grá að lit, vönduð eldunartæki frá Electrolux, gott vinnu- og skápapláss.
Harðparket á öllum gólfum nema votrýmum, flísar þar.
Lóðin verður grófjöfnuð og perlumöl í bílaplani.
Íbúðin afhendist með lokaúttekt.
Í Árnesi er grunnskóli sveitarfélagsins og félagsheimilið Árnes, Neslaug, kjötvinnsla Korngríss og N1 bensínstöð með nauðsynjaverslun og góðu grilli.
Þá er veglegt íþróttahús í byggingu.
Stutt er í Þjórsárdalinn með öllum hans náttúruperlum, og 30mín akstur á Selfoss hvar finna má alla helstu þjónustu.
--BÓKIÐ EINKASKOÐUN--Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565 [email protected] - Pantaðu einkaskoðun núna. - Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr.2.700.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
5. Skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati sem lagt verður á strax eftir lokaúttekt.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.