Austurberg 32, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
51.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
2 herb.
74 m2
51.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1980
Brunabótamat
34.800.000
Fasteignamat
48.300.000

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og Hús Fasteignasala kynna í einkasölu: Góð og talsvert endurnýjuð, 74,6 fm, tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í litlu fjölbýlishúsi.  Sérinngangur í íbúð af svalagangi.  Húsið er byggt árið 1980.
                                                  ********** Bókið skoðun **********
Nánari lýsing íbúðar. Flísalögð forstofa og þar er fatahengi. Inn af forstofu er lítil geymsla. Eldhús með endurnýjaðri innréttingu með fínum heimilistækjum, innbyggður ísskápur/frystir, uppþvottavél og þar er góður borðkrókur. Rúmgóð stofa- borðstofa og útgengt úr henni á stórar svalir. Hjónaherbergi með stórum fataskáp. Á gólfum er endurnýjað harðparket. Flísalagt baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu og þar er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Á stigagangi er geymsla í sameign með íbúðinni við hliðina á. Í sameign á jarðhæð er snyrtileg, sameiginleg hjóla og vagnageymsla og þurrkherbergi. Húsið var málað að utan fyrir þremur árum síðan.
 
Eignin er afar vel staðsett. Örstutt er í skóla á öllum stigum, ýmis íþróttamannvirki (sundlaug, Leiknisvöllinn o.s.frv), bókasafn og fjölbreytta verslun.  

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected] 

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       

                                                                                                               
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.