Miðtún 16, 800 Selfoss
71.000.000 Kr.
Einbýli
4 herb.
102 m2
71.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1947
Brunabótamat
51.840.000
Fasteignamat
65.950.000

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu Miðtún 16, Selfossi. Vel staðsett mikið endurnýjað tvílyft einbýlishús, með 3 svefnherbergjum, mjög stór timburverönd með heitum potti og skjólveggjum.  795 fm eignarlóð í grónu hverfi.

Fasteignamat 2026 verður 74.100.000


Tvílyft einbýlishús stærð er 70,4 fm auk 31,4 frístandandi bílskúrs.  Grunnflötur íbúðarhússins er 60,9 fm,  efri hæðin er  skráð 10,5 fm, en efri hæð hússins er undir súð en nýtanlegur grunnflötur efri hæðar er talsvert stærri. Húsið er talsvert endurnýjað m.a. er nýlega er búið að skipta um glugga og útidyr.  Einnig er nýbúið að klæða húsið að utan með lituðu báruáli. Húsið hefur einnig verið töluvert mikið endurnýjað að innan á undanförnum árum m.a. er búið að  endurnýja lagnir, hitakerfi hússins,  innréttingar, gólfefni, loftaklæðningu,  innihurðar ofl.  Gólfhitalagnir eru á neðri hæð og hefðbundir ofnar á efri hæð. 
Nánari lýsing.
Forstofa flísalögð
Hol, flísalagt og timburstiga upp á aðra hæð.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf,  þar er upphengt salerni, handklæðaofn, sturtuklefi, innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi með harðparketi og fataskáp.
Eldhús og stofu í opnu rými með harðparketi, innrétting er hvít með ljósri borðplötu, vönduð eldunartæki, auk þess er innbyggður örbylgjuofn.  Gufugleypir er yfir helluborði.
Úr stofu er útgengt á stóran sólpall sem snýr á móti suðri.
Efri hæð er undir súð og er því grunnflötur stærri en skráð stærð segir til um.
Komið er upp í lítið hol milli svefnherbergja.
Tvö svefnherbergi. Þakgluggar eru á báðum herbergjunum.Harðparket er á gólfum á efri hæð.

Hús og bílskúr er byggt úr holsteini  árið 1947.  Þak er úr timbri og klætt með bárujárni. 
Frístandandi bílskúr sem er klæddur með bárujárni er við hlið hússins.  Nýleg innkeyrsluhurð með opnara. 
Mulningur er í innkeyrslu. Stór timburverönd með nýlegum heitum potti með stýringum


Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996  [email protected]  

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                                                                          
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.