Hásteinsvegur 64, 900 Vestmannaeyjar
39.800.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
73 m2
39.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1964
Brunabótamat
38.200.000
Fasteignamat
31.350.000

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Hásteinsveg 64 sem er falleg 2 herbergja íbúð í á 1. hæð í fjölbýli.  Eignin er byggð úr steini árið 1964 og er 73,4 m2, þar af er geymsla í kjallara 5,3 fm2. 
Nýjir gluggar í sameign og nýtt teppi á stiga. Nýtt skólp.   Blokkin var öll máluð síðasta sumar.  Fyrir nokkrum árum var baðherbergi, gólfefni og eldhús endurnýjað. Frábær fyrsta eign eða sem dvalarstaður í eyjum.  Einstakt útsýni.

Frábær staðsetning, stutt í dalinn, golfvöllin og miðbæinn.

BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið [email protected] eða í síma 8611105

Nánari Lýsing: 
Hol:  Parket á gólfi, fatahengi
Eldhús: Parket á gólfi, snyrtileg endurnýjujð innrétting
Stofa:  Parket á gólfi, útgengt á svalir
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, upphengt wc, innrétting, sturtuklefi, opnanlegur gluggi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara
Herbergi: Parket á gólfi, skápur
Svalir: nettar svalir með fallegu útsýni
Geymsla: Geymsla með hillum er í kjallara
Sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla á jarðhæð.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.




 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.