Snorrastaðir , 806 Selfoss
41.900.000 Kr.
Sumarhús
3 herb.
50 m2
41.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1985
Brunabótamat
29.350.000
Fasteignamat
22.100.000

Hús Fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson fasteignasali kynna í einkasölu. Sumarhús úr timbri í landi Snorrastaða, örstutt frá Laugarvatni. Byggður 1985 og stendur á steyptum súlum. Tvö svefnherbergi. Sólpallur með heitum potti. Eignarlóð 2950 fm. Kjarri og skógi vaxin og með gullfallegu útsýni.

Stutt í margar af fegurstu perlum sunnlenskrar náttúru.


Húsið er töluvert endurnýjað að innan, m.a. gólfefni og eldhúsinnrétting. Gott ástand á baðherbergi þar sem er tengi fyrir þvottavél. Nýlega málað og hvíttað að innan.
Undir húsinu er einangruð kompa og þar eru inntök og miðstöðvargrind. Pottalagnir og stýring nýlegar. 

Nánari lýsing, Forstofa og geymsla þar inn af. Hol, stofa og eldhús í opnu rými. Fín eldhúsinnrétting. Hurð út á sólpall. Tvö svefnherbergi með plássi fyrir tvíbreið rúm.
Baðherbergi með innréttingu og sturtu og tengi fyrir þvottavél.

Bústaðurinn hefur verið í Airbnb útleigu og upplýsingar um bókanir sem kaupandi tekur við eru hjá fasteignasala.
Stærstur hluti innbús fylgir (ekki sófi, sjónvarp og leikjatölva)
Greitt er árgjald í Giljareiti, félag sumarhúsaeiganda á svæðinu.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða [email protected]
Bókið skoðun.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.