Björkurstekkur 67, 800 Selfoss
129.500.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
225 m2
129.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2022
Brunabótamat
112.800.000
Fasteignamat
115.200.000

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Björkurstekkur 67. Nýtt og vandað 5 herbergja einbýlishús með stórum bílskúr alls 225 fm.
Jaðarlóð og innst í botngötu.

Húsið er timburhús byggt 2022. Klætt með liggjandi báruáli og standandi lerkiklæðningu. Álþakkantur og ál/tré gluggar.

Íbúðarhluti hússins er 169,9 fm og bílskúr 55,1 fm.

Innra skipulag. Flísalögð forstofa með fataskáp. Stór stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Hurð úr stofu á sólpall til suðurs.
Stór eldhúsinnrétting með granít borðplötu. 5 hellu gaseldavél í eyju og borðháfur með rafmagni. Vönduð tæki og vínskápur.
Sjónvarpshol er framan við herbergin. Þrjú góð svefnherbergi, baðherbergi flísalagt með sturtu og innréttingu. Stórt hjónaherbergi/hjónasvíta með fataherbergi og stóru flísalögðu baðherbergi með baðkari og sturtu. Hurð út á sólpall.
Flísalagt þvottahús með stórri innréttingu og hurð út í garð. Innangengt í bílskúr.
Bílskúr er með breiðri aksturshurð og gönguhurð. 

Allt mjög smekklegt og vandað.

Hiti er í gólfum með þráðlausum stýringum. Forhitari fyrir gólfhita og neysluvatn. Innfelld ledlýsing í lofti. Dimmerar á ljósum og hægt að stýra þeim með appi í síma.
Bílahleðslustöð fylgir með eigninni. Öll tæki og innréttingar á baðherbergjum eru frá Tengi.

Þökulögð lóð og stór sólpallur með skjólveggjum, um 80 fm. Ídráttarrör fyrir heitan pott á palli. Möl í innkeyrslu. 

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða [email protected]
Bókið skoðun hjá fasteignasala.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.