Móstekkur 46, 800 Selfoss
99.600.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
163 m2
99.600.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
93.750.000
Fasteignamat
89.500.000

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali, ásamt HÚS fasteignasölu kynna í sölu Móstekk 46 sem er spánýtt 4ra herbergja parhús tilbúið til afhendingar í nýju íbúðahverfi á Selfossi.  Húsið er á einni hæð, klætt að utan með vandaðri álklæðningu og bárujárn er á þaki.  Húsið er er 163,2 fm að stærð, (íbúð 123,2 fm, bílskúr og geymsla 40 fm samtals 163,2 fm).   Hönnun hússins tekur m.a. mið af því að viðhald sé í lágmarki og innra skipulag sett upp með það að markmiði að nýta sem best stærð íbúðar.   Frábært hús, næst innst í botnlanga í göngufæri frá Stekkjarskóla.

Nánari lýsing:
Húsið telur þrjú svefnherbergi öll með fataskápum og gólfsíðum gluggum, forstofu, stofu- borðstofu og eldhús í opnu rými, gangur/hol, baðherbergi, gesta salerni og þvottahús. Innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi.  Úr stofu er rennihurð út í garð.
Eldhúsinnrétting frá HTH með viðarmunstri og vönduð AEG heimilistæki.  Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu.  Innihurðir eru yfirfelldar, hvítlakkaðar án þröskulda.  Barðherbergi flísalagt í hólf og gólf, HTH innrétting, speglaskápur með lýsingu, baðkar og "walk in" sturta með glervegg.  Úr baðherbergi er gönguhurð út á baklóð.  Gesta salerni með flísum á gólfi, HTH innréttingu og speglaskáp.  Þvottahús með innréttingu frá IKEA sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara í vinnsluhæð.  Bílskúrsgólf er flísalagt.
Plejd ljósastýring er í húsinu. Gluggar eru vandaðir, ál/tré gluggar.  Hleðslustöð fyrir rafbíla.  Loftadúkur í öllum rýmum nema bílskúr. Hitalagnir eru steyptar í gólfplötu og húsið því kynt með svæðaskiptum digital-gólfhita.  Lóð er grófjöfnuð en hægt er að fá húsið með þökulagðri lóð og steyptu bílaplani samkv. nánara samkomulagi.  Gert er ráð fyrir heitum potti í garði og ídráttarrör fyrir lagnir til staðar.
Virkilega spennandi  eign á fínum stað.  Sorpskýli er staðsett á bílaplani.

Sjón er sögu ríkari - get sýnt samdægurs

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected] 


Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir       
                                                                                                                
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.