Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Sóleyjargötu 7 í Vestmannaeyjum. Húsið er byggt úr steini árið 1955 og er 313,5 m2 þar af er sér íbúð á neðri hæð sem gefur góðar leigutekjur og 27,6 m2 bílskúr sem er byggður árið 1970. Nýlegur 10,5 m2 sólskáli er ekki inn í skráðum m2 eignarinnar.
Húsið stendur hátt og er með einstöku útsýni. Búið er að endurnýja eldhús og einhverja glugga. Nýr yfirbyggður pallur í suður með heitum potti. Inngangur að húsi var hellulagður nýlega. Íbúð á neðri hæð var töluvert endurnýjuð árið 2018, veggir einangraðir og klæddir, nýjar loftaplötur, ný gólfefni og nýtt eldhús, allir gluggar á neðri hæð nema einn endurnýjaðir árið 2020.
Byrjað er á múrviðgerðum á húsinu að utan sem er ólokið.
Nánari lýsing:Forstofa: Komið er inn í forstofu, flísar á gólfi, fatahengi
Eldhús: Vínylparket á gólfi, nýleg Ikea innrétting, tveir ofnar, háfur, innbyggð uppvöskunarvél
Stofa: Vínylparket á gólfi
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, wc, baðkar, vaskur með innréttingu, opnanlegur gluggi.
Herbergi 1: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi, fataskápur.
Herbergi 2: parket á gólfi, fataskápur
Ris: parketlagður stigi upp í ris
Svefnherbergi: Parket á gólfi
sjónvarpsrými: parket á gólfi
Baðherbergi: flísar á gólfi, innrétting, sturta, wc.
Neðri hæð:
Geymsla/þvottahús: steypt gólf
Bílskúr: Flísar á gólfi, ofn, heitt og kalt vatn, rafmagn, brunnur undir bílskúr
Pallur: Nýr pallur í suður með yfirbyggingu, nýr rafmagnspottur, þrír pallar eru við húsið, tveir að framan og einn að aftan
Sólskáli: Nýlegur 10,5 m2 sólskáli sem er ekki inn í skráðum m2.
Íbúð á neðri hæð:
Forstofa: parket á gólfi, fatahengi
Eldhús: parket á gólfi, nýleg eldhús innrétting
Stofa: parket á gólfi, nýlegur gluggi
Baðherbergi: flísar í hólf og gólf, baðkar, wc, lítill vaskur, opnanlegur gluggi
Svefnherbergi: parket á gólfi
Svefnherbergi: parket á gólfi
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið [email protected] eða í síma 8611105Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.