Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu endaraðhúsið Hraunhóla 7, Selfossi. Stimpilsteypt verönd með timburskjólveggjum og heitum potti með stýringum. Þrjú svefnherbergi. Bílskúr. Örstutt er í leikskóla og grunnskóli í göngufæri. Húsið er alls 146,6 fm með bílskúr. Byggt 2008 úr timbri. Klætt að utan með ljósri Duropal klæðningu. Á þaki er bárujárn. Ál/tré gluggar. Gólfhitalagnir með stýringum. Harðparket er á gólfum í holi, stofu, eldhúsi og herbergjum. Flísar eru á gólfum í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi. Epoxy er í bílskúr. Innfeld LED ljós. Ljósar viðarhurðar.
Nánari lýsing:Forstofa með skáp.
Þrjú svefnherbergi þar af eitt forstofuherbergi. Stór skápur í hjónaherbergi.
Sjónvarpshol er í miðrými.
Stofa og eldhús opið í eitt. Svalahurð úr stofu út á verönd.
Eldhúsinnrétting er hvít háglans höldulaus innrétting. Flísar á milli skápa. Uppþvottavél fylgir Nýlegur bakaraofn.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Þar er upphengt salerni, stór walk in sturta með innfeldum tækjum. Handklæðaofn. Gert er ráð fyrir baðkari.
Þvottahús flísalagt þar er innrétting og innangengt í bílskúr.
Bílskúr er rúmgóður. Skv. teikningu er geymsla innst í skúrnum en hún er ekki uppsett. Bílskúrshurð flekahurð með gönguhurð.
Lóðin er þökulögð. Mulningur í bílaplani
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 [email protected] ,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.